
Göngustígur eftir Fornahvarfi myndi nýtast fjölmörgum en mikill fjöldi fólks fer eftir Dimmuhvarfi yfir í Fornahvarf daglega og er þetta aðalleiðin úr dalnum að vatninu. Eins fer heimilisfólk þjónustukjarnans Dimmuhvarfi 2 (sem Kópavogsbær rekur) þarna daglega um göturnar og er meðal annars fólk í hjólastól sem skapar mikla hættu fyrir þau. Þessi leið myndi auk þess nýtast skólabörnum í Vatnsendaskóla og auka öryggi þeirra á leið í skólann. Sjá kort: https://bit.ly/3sBK3le
Óskiljanlegt að það skuli ekki vera göngustígur þarna!!
það hefur lengi vantað gönguleið um Fornahvarf. Hundruðir fara þar um gangandi, hjólandi og skokkandi daglega. Engin þörf er á göngustíg um opið svæði milli Dimmuhvarfs og Melahvarfs, enda prýðisgóð gönguleið og leiksvæði í nágrenninu, rétt fyrir ofan Grundarhvarf.
Sjá myndir við Fornahvarf: https://bit.ly/3kuDU7P https://bit.ly/3syz9wG
Göngustígur við Fornahvarf myndi nýtast talsvert fleirum en heldur en göngustígur um opna svæðið milli Dimmuhvarfs og Melahvarfs. Auk þess er nú þegar hin fínasta göngu- og hjólaleið frá Dimmuhvarfi á upplýstum og malbikuðum stígum.
Hér má sjá hvaða hætta getur skapast þegar fjöldi gangandi vegfarenda þarf að fara um Fornahvarf: https://bit.ly/2ZVHrCu
Fornahvarf er án göngustíga eða gangstétta sem er stórundarlegt í ljósi þess hvað vatnið hefur mikið aðdráttarafl og þann gríðarlega fjölda akandi, gangandi og hjólandi fólks sem þar fer um daglega. Göngustígur um Fornahvarf myndi nýtast talsvert betur en stígur milli Dimmu og Melahvarfs sem væri fyrir örfáa.
Þessi gönguleið myndi nýtast töluvert fleirum heldur en nýr göngustígur frá Dimmuhvarfi upp í Melahvarf þar sem þegar er til staðar malbikuð og upplýst gönguleið.
Upplýstur göngustígur myndi tryggja öryggi gangandi vegfarenda sem oft eru illsjáanlegir á veginum í myrkri. Fjármunum væri töluvert betur varið í göngustíg eftir Fornahvarfi frekar en í nýjan stíg frá Dimmuhvarfi upp í Melahvarf sem nýtist örfáum. Malbikaður og upplýstur stígur er nú þegar úr Dimmuhvarfi og óþarfi að bæta öðrum við.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation