
Opið svæði sem nýtist íbúum nærliggjandi húsa sem hafa aðgang að því í gegnum eigin garða en ekki verða gerðir sérstakir göngustígar inn á svæðið. Þarna má planta trjám og byggja upp skjól án þess að skipuleggja svæðið sérstaklega að öðru leyti. Íbúar nærliggjandi húsa gætu tekið að sér að fóstra þennan blett og halda honum snyrtilegum. Í anda hugmyndafræðinnar um „sveit í borg“ má leyfa hrossum að vera á afmörkuðu svæði til beitar en þau eru nágrönnum bæði til ánægju og yndisauka.
Áratugalöng hefð er fyrir því að þessi blettur sé nýttur af íbúum nærliggjandi húsa og hefur verið sátt meðal íbúa um notkun þessa friðsæla svæðis. Íbúar hafa haldið svæðinu snyrtilegu, plantað trjám og eins hefur hestum verið beitt á afmörkuðum hluta. Mikill kostnaður er við göngustígagerð að svæðinu ásamt gríðarlegu jarðraski og töluverðum trjáfellingum. Mörg brýnni verkefni eru í neðri Hvörfum sem þarfnast skoðunar og kalla á úrbætur. Eitt af þeim er t.d. Fornahvarf sem er án göngustíga.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation